Rúmgóður og bjartur veislusalur í íþróttahúsi Gróttu. Tekur um 120 manns í sæti og allt að 200 í standandi veislu. Salurinn er afar bjartur með stórum gluggum og hátt er til lofts. Salurinn hentar ýmsum viðburðum svo sem fermingarveislum, brúðkaupum, ættarmótum, afmælum, erfidrykkjum eða fyrir fundi og námskeið. Lítið framreiðslueldhús Hljóðkerfi fyrir tal og tónlist Skjávarpi Salurinn er leigður út án veitinga Barborð í salnum Allt að 120 manns í sæti 200 í standandi veislu Athugið að leigutakar verða að vera orðnir 20 ára gamlir til að leigja salinn. Veislugestir þurfa einnig almennt að vera orðnir 20 ára gamlir. Íþróttafélagið Grótta áskilur sér rétt til að aflýsa og loka veislum þar sem þessum reglum er ekki fylgt.
Suðurströnd 2, Seltjarnarnes